parallax background

Fyrstu skref

Ég býð upp á frían kynningartíma án allrar skuldbindingar. Þannig getur þú metið hvort markþjálfun sé það sem að þig vantar og í leiðinni hvort að ég sé markþjálfi sem að þú vilt vinna með. Ef af samstarfi verður gerum við með okkur samkomulag um hvað það er sem við erum að fara að gera, hversu lengi og hvert endamarkmiðið sé. Þessi þjálfun felur í sér skuldbindingu af minni hálfu og þess sem að sækir þjálfunina.


Staðsetning

Ég mæti þér þar sem þú ert. Á skrifstofu þinni, á minni skrifstofu Ármúla 36, á netinu eða í gegnum síma.


Um markþjálfann

Ég lauk grunnnáminu 2016 og framhaldsnámi í markþjálfun vorið 2018 frá Evolvia. Vorið 2018 tók ég ACC vottun alþjóðasamtakanna ICF (International Coach Federation). Samtökin standa vörð um fagið og fagmennskuna og leggja til grundavallar 11 hæfniskröfur sem allir markþjálfar skuldbinda sig til að hafa að leiðarljósi. Ég er í félagi markþjálfa á Íslandi.

Ástæða þess að ég er í þessu fagi og hef stofnað fyrirtækið Markhól er sú að ég hef svo mikla trú á þessari nálgun markþjálfunar. Hvernig aðferðin getur stutt við einstaklinga og hópa og hjálpað þeim að meta og taka ákvarðanir út frá sér og sínum væntingum.

Bakgrunnur minn er úr rekstri, stjórnun og markaðsmálum. Ég hef stýrt stórum einingum og deildum, farið fyrir breytingum og unnið mikið með fólki. Ég sé tækifæri í markþjálfun og hef þá staðföstu trú og áhuga á að taka hana áfram og vinna með. Mig langar til þess að vera sú sem býr til vettvang - skapar aðstæður fyrir aðra svo þeir geti haldið áfram og stækkað. Mig langar til að ná árangri með þér og búa til verðmæti sem skipta máli.

Verðskrá

Einkatímar:

- Stakur tími 18.900 kr.

- Lengri tímabil samningur og samkomulag

- .

-.

Vinnustofur:

Fer eftir lengd og umfangi.

* Með öllum keyptum tímum fylgir frír kynningartími.

*Flest stéttarfélög veita styrki fyrir markþjálfun gegn kvittun.


Greiðslufyrirkomulag

Greiðsla fyrir markþjálfun leggst inn á reikning 0513-26-526100 kt. 270966-4899, það er eigandi Markhóls Lilja Hallbjörnsdóttir.

Trúnaður og öruggt umhverfi

Markhóll leggur mikið upp úr því að skapa þægilegt og öruggt umhverfi. Þá er markþjálfi bundinn trúnaði við viðskiptavini sína skv. siðareglum ICF.


Praktískar upplýsingar

Opnunartími
Virka daga frá 09:00 - 17:00

Markhóll markþjálfun
Lilja Hallbjörnsdóttir
Kt. 270966-4899