Viðskiptatengd vinnustofa

 

 

Viðskiptatengd vinnustofa er fyrir 10 einyrkja, sjálfstætt starfandi aðila, aðila með eigin rekstur, aðila sem vilja ná lengra innan fyrirtækis síns og eða aðila með viðskiptahugmynd í maganum og vilja sjá hana verða að veruleika.

Notast er við markþjálfun, sjálfsþekkingar- og innsæisæfingar og gagnræður til að opna á möguleika og móta skýra stefnu og aðgreiningu hvers aðila fyrir sig. Hér búum við einnig til umhverfi þar sem hægt er að miðla af eigin reynslu og deila, tengjast.

Námskeiðið miðar að því að skila þátttakendum einstakri upplifun, dýpri nálgun og stöðutöku, tengslum og umræðum.

Kleif Farm, Eilífsdalur í Kjós.

Við völdum einstaka staðsetningu rétt fyrir utan höfuðborgarsvæðið – í nýju fallegu húsi í Kjósinni. Á Kleif Farm er boðið upp á fimm lúxus herbergi með sérbaðhergjum. Innréttingar og hönnun eru fyrsta flokks, fallegt miðrými þar sem vinnustofan fer fram með útsýni yfir Eilífsdalinn. Heitur pottur og huggulegt útisvæði. Í boði er að gista eina nótt, laugardagsnóttina, hver og einn er á eigin vegum hvað varðar gistingu og hver sér um sig eftir að vinnustofu lýkur. Bókun á gistingu er í gegnum okkur á netfangið: lilja@markholl.is

  • Hvar: Kleif Farm, Eilífsdal í Kjós
  • Hvenær: 16. og 17. október 2021
  • Tími: Laugardag 11-17 og sunnudag 11-14
  • Innifalið: Léttar veitingar meðan á vinnustofu stendur.
  • Verð: 70.400.-
  • 5 herbergi öll með sérbaðherbergi. Verð: 15.000.- per einstakling.
  • Svefnfyrirkomulag: Herbergi 1: Tvö rúm í queen stærð. Herbergi 2: Eitt rúm í king stærð. Herbergi 3: Tvö einbreið rúm. Herbergi 4: Eitt rúm í queen stærð. Herbergi 5: Eitt einbreitt rúm.
  • Vinnustofa og gisting laugardagsnótt: 85.400.-
  • Skráning: lilja@markholl.is

Um okkur

Við erum Fanney Sigurðardóttir og Lilja Hallbjörnsdóttir. Fyrir utan að vera mæðgur og nánir samstarfsfélagar þá erum við báðar með mikinn áhuga á viðskiptum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem við stöndum fyrir vinnustofu saman. Árið 2018 héldum við nokkrar vinnustofur um efa og trú á eigin sannfæringu. Þá hefur Lilja stýrt vinnustofunni Að segja nokkur orð og Fanney verið með vinnustofur tengdar stjörnuspeki og innsæi.

Fanney er viðskiptafræðingur og á og rekur fyrirtækið sitt Fanney – Stjörnuspeki. Áður sinnti hún starfi þjónustustjóra Já hf.

Lilja er eigandi og stofnandi Markhóls markþjálfunar. Hún er alþjóðlega vottaður markþjálfi og menntuð í stjórnun og markaðsfræðum (diploma frá HR og Hí). Lilja á að baki yfir tuttugu ára reynslu í rekstri, stjórnun og markaðsmálum.

Fanney og Lilja á vinnustofunni; Efi – Trú á eigin sannfæringu

Myndir frá Kleif Farm í Kjós