„Þið bjugguð til öruggt rými fyrir okkur, miðluðuð upplýsingum á mjög skilgreinilegan hátt. Maður fékk betri sýn á sinn rekstur og kraft til að gera betur. Þið gerðuð gríðarlega mikið fyrir mig. Er ótrúlega þakklát að hafa fengið að vera með ykkur í þessu.“ – Lovísa Tómasdóttir
„Mér fannst yndislegt að læra af svona hjartahlýjum konum sem að virkilega vilja hjálpa manni að sækja styrkinn sinn.“ – Anna Guðný Torfadóttir
„Staðsetningin, umgjörðin, flæðið, tímastjórnunin, viðmótið ykkar, umhyggjan og næmnin – allt til fyrirmyndar. Öll upplýsingagjöf á undan var mjög skýr. Efnið ekki of þungt né flókið, allt svo aðgengilegt og auðvelt að tengja, mannlegt og huggulegt, maturinn æði.“ – Hera Sigurðardóttir
„Frábært utanumhald, jákvæðni og góð orka. Spurningarnar og verkefni umhugsunarverð á jákvæðan máta. Ykkur tókst að laða fram það besta í öllum. = Kraftur. Þetta var töfrum líkast! Takk. Valdeflandi = Empowering.“ – Ásta Sigríður
„Mér fannst frábært hvað þetta var vel sett upp, faglegt og vel skipulagt. Gott og traust utanumhald. Ég get 100% mælt með vinnustofunni sama hvar þú ert statt/staddur/stödd í viðskiptum! Þú færð ekki bara réttu tólin til að hámarka árangur heldur líka aðferðir til að nota tólin á þinn eigin hátt. Mér fannst ég fá nýja innsýn í fyrirtækið mitt sem nýtist mér á góðan hátt.“ – Saga Lluvia
„Hvað það var mikið interactive, speglun og tengjast/heyra í hinum. Viðskipti sett í skemmtilegan búning.“ – Róberta Michelle Hall
„Skipulagið, gegnsæið, skýrleikinn. Mér fannst gott að heyra reynslusögurnar og getað speglað mínar áhyggjur eða minn raunveruleika í ykkur og í hópnum. Mér fannst efnisinnihaldið passa við það sem mig vantaði að vita.“ – Arianna Ferro